Aðalvalmynd

Afmæli Salnýjar Kaju

Auglýsing

Afmæli Sólnýjar Ingu

Sigurpáll Valmar fæddur

Klukkan

Afmæli

Atburðarteljari

Leit

Innskráningar kubbur

Esurveyspro.com snilldarforrit fyrir rannsóknir

19. mars 2009 klukkan 15:20
Mig langar að benda öllum sem þurfa að gera rannsóknir vegna skólans að kíkja á http://www.esurveyspro.com.... Nánar

Blogg lífgað við

14. janúar 2009 klukkan 14:01
Jú halló!

Ég var nú bara svona að spá í hvort það væri búið að henda út þessari bloggsíðu minni, en fyrst svo var ekki þá gat ég alveg eins prófað að fikta aðeins í henni.

En vá hvað það er orðið langt síðan ég bloggaði síðast. Núna er Salný Kaja löngu orðin 6 ára og að nálgast 7 ára afmælið og Sólný Inga orðin 4 ára og að nálgast 5 ára afmælið sitt og þá 5 ára skoðunina. Þannig að tjah ætli ég verði ekki að kýla á að blogga svo um hana fyrst ég gerði það fyrir Salnýju Kaju. En það verður þó ekki fyrr en í sumar.

Þangað til blogga ég kannski af og til ef ég hef eitthvað sniðugt að segja. En það er ekki margt akkúrat í dag.

Kær kveðja,
Signý BjörgKiss

5 ára skoðun Salnýjar Kaju minnar:)

10. júlí 2007 klukkan 12:06
Í gær var loksins komið að 5 ára skoðun Salnýjar Kaju, hún var búin að vita af henni í dágóðan tíma og því orðin heldur spennt. Við mættum tvær upp á heilsugæslu og henni fannst mjög spes að 5 ára skoðunin færi þar fram, því þar færi hún til læknis, en síðan mundi hún svolítið eftir sér þegar við komum inn í ungbarnaeftirlitið því hún hafði auðvitað komið þangað áður í 3,5 ára skoðun.

En jæja, Salný Kaja var beðin um að fara úr skónum til að byrja með og stíga á vigt. Hún vóg 22,6 kg, sem er held ég bara nokkuð fínt, veit ekki alveg hvernig taflan er. Síðan stóð hún við vegg og var hæðarmæld upp á 117,3 sentimetra. Hún heldur sér alveg í sinni kúrfu sem er mjög flott og bendir allt til að hún verði hávaxin og grönn, eða hún er það allavega núna.

Næst tók við að hoppa á öðrum fæti, það gerði hún eins og ekkert væri eðlilegra og stóð einnig á öðrum fæti alveg stíf.

Síðan var hún spurð hvort hún kynni stafina og hún neitaði því nú frekar svona feimin, en þegar hún var komin með sjóræningjaleppinn á augað, var nú ekki eins og hún þekkti ekki stafina því hún benti markvisst á rétta stafi og meira að segja skrifaði þá í loftinu.

Því næst tók við þrívíddarpróf og reyndi hún að koma við fluguna sem hún sá, sem ég skil reyndar ekki því ég myndi nú frekar reyna að hoppa í burtu:)

Loks kom að því erfiðasta, sprauta í handlegginn, ekki var nú mín kát yfir þeirri stóru sprautu og vildi nú bara hætta við þegar hún sá hana. En hún harkaði samt af sér og felldi bara 3 tár svona bara til að fá smá meðaumkun.

Á meðan við biðum eftir lækninum okkar fékk hún blað og liti til að teikna mynd. Hún teiknaði hús og ákvað að skella eldingum með.

Síðan kom læknirinn og skoðaði hana hátt og lágt og var mjög ánægður með hana. Síðan segir nú hjúkrunarfræðingurinn sem var þarna með okkur að hún hafi teiknað svo fína mynd og sýndi lækninum sérstaklega að hún hefði sko skrifað nafnið sitt svo vel á blaðið. Ég hélt ég myndi springa úr monti, sérstaklega þar sem barnið hafði nú logið um að það kynni ekki stafina og sýnir sig svo svona:) Æ hvað þetta er gaman, ég þarf greinilega að setjast meira og kenna henni Salnýju Kaju því hún er svo klár að maður verður að nýta það á meðan hún er ung.

En þannig var nú öll 5 ára skoðunin mikla, ég sem hélt það yrði gáfnapróf og allt, en þá var þetta bara heilsufarspróf. En ó well ég þarf svo sem ekkert próf til að segja mér hvað hún er vel gefin;)

Montmamma kveður í bili,
Signý Björg

Sólarfrí!!!

29. júní 2007 klukkan 10:00
Af hverju er ekki skylda á þessu veðravonda landi að hafa SÓLARFRÍ þá örfáu daga sem sést í SÓL???

Ég bara skil ekkert í því að það sé bara ekki komið í landslögin að þegar hitastigið fari upp í einhverjar ákveðnar gráður með sólina skínandi skært og skýjalausan himinn þá sé bannað að láta starfsmenn vinna lengur en til 12!!!

Hver tekur undir þetta með mér???

Það er bara svo svekkjandi hvað veðrið er alltaf best á virkum dögum á sumrin, um leið og það kemur helgi dregur ský fyrir sólu og vindurinn blæs sem mest hann getur. Og þar með fara bara allir í búðir til að dreifa huganum frá leiðinlega veðrinu sem átti að vera svo gott.

Ég er búin að bíða alveg eftir því í sumar að geta blásið upp sundlaugina sem við keyptum í fyrra og náðum einmitt að nota einu sinni þá því veðrið var bara ekki betra.

Núna langar mig að vera heima að blása upp sundlaugina og skella mér í hana með stelpunum mínum, en ég verð bara að vona að veðrið verði jafn yndislegt um helgina þannig að það sé kannski einhver glæta á því að láta verða af því.

Jæja, aðeins búin að tjá mig, læt þetta bara duga í bili.

Kær sólarkveðja,
Signý Björg

Afmæli Sólnýjar Ingu, þeirra beggja og helgin sem leið!

18. júní 2007 klukkan 16:58

Það er nánast að ég finni fyrir afslöppun í dag að vera komin í vinnuna, reyndar búin að vera nærri því sofnuð nokkrum sinnum í dag, sem lýsir því kannski einmitt best hvað ég er þreytt eftir þessa helgi.

Við fengum þessa líka brilliant hugmynd að drífa af að halda upp á afmæli stelpnanna okkar á föstudeginum bara eftir vinnu, þannig að fólk hefði nú helgina til að jafna sig. Það þýddi auðvitað tiltekt og stress fram á nótt á fimmtudeginum og enn meira stress á föstudeginum. Við Sigurgeir flúðum úr vinnunni rétt fyrir klukkan 1400 til að geta mætt á leikskólahátíð í leikskólanum hjá stelpunum og var hún bara fín, fyrir utan að bíða eftir löggunni sem þurfti að fylgja okkur í skrúðgöngu í hálftíma. En allavega það biðu allir bara stilltir og síðan tók gangan c.a. 5 mínútur. En skólahljómsveit Kópavogs stóð sig mjög vel, Sara Valný systir var nú einu sinni í þeirri merku hljómsveit og gaman að sjá að hún stendur sig ennþá vel þrátt fyrir augljósan Söru Valnýjar missi.
Nú síðan voru hoppukastalar í garðinum hjá leikskólanum og þar hoppuðu stelpurnar alveg eins og vitleysingar í miklu stuði þangað til við foreldrarnir sögðum hingað og ekki lengra, við verðum að drífa okkur heim að gera klárt fyrir afmælið!
Stelpurnar voru svekktar yfir að fara en svakalega spenntar samt vegna afmælisveislunnar.
Eftir ýmsar hindranir gekk afmælisveislan bara vel, slatti af fólki mætti en sumir létu sig vanta. Þetta var bara mjög temmilegur fjöldi og ég held að allir hafi komist bara ágætlega fyrir og fengið ágætlega að borða, eða ég vona það allavega;)
Stelpurnar voru himinlifandi kátar, reyndar Sólný Inga orðin svolítið þreytt í restina, en báðar sérlega sælar með daginn og pakkana. Krakkarnir gátu líka leikið sér úti í garði þrátt fyrir rigningarhiminn og það var fyrirtakslausn og mikið fjör.
Fullorðna fólkið fékk þá tiltölulega gott næði til að spjalla fyrir innan. Nú síðan var auðvitað einn hápunktur á kvöldinu og sérlega gaman að svona margir skyldu vera ennþá í afmælinu þegar hann átti sér stað.

Valdi Kolli bróðir og félagar hans Helgi Svavar og Davíð Þór í Hljómsveitinni Flís, unnu að sjálfsögðu einu verðlaunin sem skiptu máli í Grímunni þá um kvöldið! En það var að sjálfsögðu fyrir tónlistina í söngleiknum LEG, sem sýndur er í Þjóðleikhúsinu, eða verður það aftur eftir sumarfrí. Ohh hvað það var æðislegt þegar þeir voru lesnir upp og allir hoppuðu og öskruðu af kæti heima hjá mér:) Valdi Kolli og Helgi Svavar stóðu sig líka rosalega vel í þakkarræðunni sinni! Æ hvað þeir áttu þetta skilið, og ég hvet enn og aftur þá sem hafa ekki drattast til að sjá sýninguna að tryggja sér miða á sýningu í haust hið snarasta, þetta er skemmtun og upplifun sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.

En jæja þið getið bara fundið bloggið þar sem ég bloggaði um mína reynslu af sýningunni en ég mun ekki segja meira um hana í þessu bloggi.

Nú jæja síðan rann upp laugardagurinn en þá átti hún Sólný Inga mín alvöru afmælið sitt og var mjög stolt og ánægð yfir því að vera nú loksins orðin þriggja ára, en hún er búin að segja í mjög langan tíma að hún sé tveggja að verða þriggja þannig að þetta er loksins orðinn raunveruleiki:)

En því miður gátum við ekki bara snúllast með afmælisbarninu þann daginn því við vorum boðin í brúðkaup og hófst það klukkan 1330, en var búið snemma þannig að við gátum eytt kvöldinu með stelpunum.

Síðan rann upp hinn merki 17. júní með þjóðbúningum og öllu tilheyrandi. Reyndar klæddum við bara stelpurnar í búning þetta árið en á næsta ári stefnum við að því að vera öll í búning. Myndir mun ég setja inn af stelpunum fljótlega.

Og eftir að hafa þeyst um Rútstún, Árbæjarsafn og Miðbæ Reykjavíkur, vorum við alveg búin á því og fegin að komast heim.

Dagurinn í dag er því bara búinn að vera afslappelsi miðað við dagana á undan.

En nú ætla ég að fara að spýta í lófana og henda drasli heima.


Kær kveðja,

Signý Björg

Afmælissveisla dætranna minna!

15. júní 2007 klukkan 13:25
Verður haldin hátíðleg í dag, reyndar býst ég við því að við höldum bara aðra veislu svo seinna fyrir þá sem nota afsakanir eins og að þeir séu staddir í útlöndum eða úti á landi í dag og komist því ekki í afmælið, við kaupum ekki svoleiðis vitleysu. En allavega þá ákváðum við hjónin að drífa bara í því að halda afmælisveislu í dag, þar sem allt er eitthvað svo ómögulegt hvort eð er að við vildum eiginlega hreinskilnislega bara koma þessu af verkefnalistanum í bili.Skömmustulegur

Það lítur nú ekki út fyrir að það verði garðveisla mikil þar sem veðrið getur aldrei verið eins og það á að vera, en kannski fá krakkarnir eitthvað að skottast úti.

Annars verður þetta vonandi bara fámennt en góðmennt og vonandi pláss fyrir alla, en nú verður þetta síðasta skiptið sem við höldum afmælisveislu í allt of lítilli íbúðinni! Jeij Hlæjandi

Stelpurnar eru búnar að vera rosalega spenntar fyrir þessari afmælisveislu og Salný Kaja sem er sko orðin 5 ára núna fékk að hringja í flesta gestina og bjóða þeim og var alveg svakalega montin af sér og stolt, reyndar gleymdi hún stundum að vera ákveðin í því að láta fólk vita hver þetta væri, en þetta reddaðist allt saman.

Sólný Inga er minna búin að vera að fatta þetta allt saman en hermir bara eftir Salnýju Kaju í öllum þeim fagnaðarlátum sem brjótast út af spenningi hjá henni.
Sólný Inga er samt búin að vera mjög dugleg núna í langan tíma að láta vita af því að hún sé sko 2ja ára og sýnir 2 putta, en sé að verða 3ja ára og bætir þá einum viðHlæjandi

Ohhh þær eru svo duglegar!

En síðan mundi ég loks eftir því að panta tíma fyrir Salnýju Kaju í 5 ára skoðun í gær og fékk ekki tíma fyrr en 9. júlí, þannig að ég hef góðan tíma til að reyna að kenna henni allt sem ég get þannig að hún komi sem best útUllandi

Ef einhverjir muna eftir því hvers var krafist í 5 ára skoðuninni mega þeir endilega láta mig vita með kommenti eða einhvern veginnHlæjandi

En jæja, þarf að fara að drífa mig á leikskólahátíðina og svo að þeysast um heimilið að klára að shæna það og vera síðan vonandi ekki sveitt og ómáluð í skítugum fötum þegar gestirnir koma!

Kær kveðja,
Signý Björg

P.s. ef ég gleymdi að bjóða einhverjum þá má hann láta mig vita og koma svo bara, þetta á samt bara við um fólk sem ég þekki!

Blóðgjafadagur í dag!

14. júní 2007 klukkan 16:28
Ég var aðeins að lesa inni á mbl.is og þar var efsta fréttin um að í dag sé blóðgjafadagurinn og líka blóðbankahlaupið og alles og vil ég hvetja alla sem hafa aukablóð í æðum sínum og geta gefið blóð að drífa sig niður í blóðbanka og gefa blóð. Ég væri allavega ekki á lífi í dag að ég held nema vegna þess að ég fékk gefins dágóðan slatta af blóði eftir allt blóðbaðið við fæðingu Salnýjar Kaju.

Hérna er fréttin:

Blóðgjöf

Það sem ég man helst eftir af skurðarborðinu var einmitt þegar einn læknirinn var að hringja og hringja í blóðbankann að spyrja hvort blóðið væri ekki að koma, þá var ég með brjálaðan sting í hjartanu og horfði á blóðþrýstinginn falla á skjá við hliðina á mér, datt svo aðeins út og loks vaknaði ég við síminnkandi verk í hjartanu og sá þá blóðið vera að renna inn í mig.

Mér fannst það reyndar nett ógeðslegt að fá gefins blóð ef ég á að vera alveg hreinskilin, því það er alls konar fólk sem gefur blóð. En eftir á var ég bara mjög þakklát og alltaf meira og meira eftir því sem ég hugsa út í hvað hefði virkilega gerst ef ég hefði ekki fengið blóðið. Tónninn í lækninum var allavega ekki kátur þegar hann rak á eftir blóðinu.

En ég er allavega ennþá hér í dag, sumum til ánægju öðrum ekki til eins mikillar ánægju en ég myndi samt ekki vilja vera annars staðar. Takk blóðgjafinn minn!

Og þar með verður þetta blogg ekki lengraHlæjandi,

Kær kveðja,
Signý Björg

Afmæli Salnýjar Kaju

12. júní 2007 klukkan 14:06
Salný Kaja frumburður minn 5 ára afmæli í gær þann 11. júní 2007, kl. 18:33 til að vera nú nákvæm á þvíHlæjandi
Hún var með eindæmum stolt af því að vera nú orðin 5 ára og að þá yrði hún sko næst 6 ára og þá væri hún sko orðin stór. Ég vitna annars bara í bloggið hjá pabbanum um söguna í leikskólanum.

En eins og von var vísa, lá móðirin auðvitað bara með mígreni í gær, sem er fyndið í ljósi þess hversu illa ég var látin kveljast þann sama dag fyrir 5 árum síðan, en þá var ég nú nærri dauð, en þetta var nú svo sem bara enn eitt mígrenið sem minnir mig á það hversu gott það var að ég skyldi nú hafa það af þrátt fyrir allan blóðmissinn og kvalirnar!!!

Ég vona svo innilega að einhvern daginn komi töfralausn við þessu helvítans mígreni þannig að ég geti átt mér fullkomið og yndislegt líf og sinnt börnunum mínum almennilega og þá sérstaklega þá daga sem þau eiga afmæli!!!

Og eins og gefur að skilja var ekki haldið upp á afmælið hennar Salnýjar Kaju með öllu tilheyrandi í gær, heldur verður haldið upp á afmæli þeirra beggja systra um næstu helgi og þá verður vonandi mikið stuðUllandi

En allavega ég var rosalega stolt af henni Salnýju Kaju í gær og ég tel mig mjög heppna að eiga svona yndisleg börn, sem hafa gaman að því að kvelja okkur foreldrana með yfirgangi en eru svo mestu ljósin hjá ömmum sínum og öfum. Já ég tel það vera forréttindi að eiga börn og mér þætti það yndislegt ef þjóðfélagið gæti verið meira á þá leið að maður gæti bæði átt heimili og unnið bara til 1400 á daginn og sinnt þá börnunum. En það er víst bara komið til móts við eldra fólkið með þann díl.
Úff ætlaði mér nú ekki út í einhverja þetta er ömurlegt þjóðfélag umræðu núna og mun því ekki segja meira á þá leið.

Tjah já eitthvað fór það nú fyrir brjóstið á manninum mínum að mér dytti í hug að láta vaxa á mig pung, en ég er nokkuð viss um að það muni aldrei gerast heldur var ég meira að hugsa þetta sem svona expression, eða svoleiðis.
Mér finnst pungar frekar ljótir og vil eiginlega alls ekki hafa svoleiðis dinglandi framan á mér!

Og Erla það mun líða langur tími þar til þú sérð mig sprangandi um á bikiníi, ég er bara ekkert fyrir að gera slíkt, mun frekar sjást úti í snjógalla í 20 stiga hita en bikiníi, en þú mátt gera heiðarlegar tilraunir til að sjá mig þannigUllandi

En framundan er nóg að gera, afmæli, brúðkaup, fleiri brúðkaup, sumarbústaðarferðir, pökkun og flutningar, vonandi mikil gleði og sól, Mastersritgerð, og fleira og fleira og fleira....

Læt þetta duga í bili og kær kveðja,
Signý Björg

Pælingar...tré....pælingar....

08. júní 2007 klukkan 11:43
Vá hvað ég er orðin dugleg í blogginu núna, bara búin að breyta um útlit og skrifa tvær færslur núna, á tveimur dögum. Geri aðrir latir bloggarar betur!

En hvað get ég nú blaðrað um í dag. Ég var alveg búin að úthugsa eitthvað til að þvaðra um, en man það bara ekki frekar en annað.

En eitt get ég nú allavega tjáð mig um og það er útsýnisfrelsi. Vá hvað það er mikilvægt að hafa útsýni og ofboðslega finnst mér margt fólk fara þess á mis, sérstaklega út af trjám! Ég skil bara ekki allt þetta fólk sem finnst gaman að risastórum trjám sem voru kannski fín fyrir 10 árum síðan og skyggðu ekki á hús nema að pínkulitlum hluta. Þegar trén eru farin að byrgja hálft húsið þá finnst mér það vera vísbending um að henda eigi þeim burt og gera eitthvað annað í staðinn. Og hvers vegna er ég nú að blogga um þetta? Jú það varð ljós á lóðinni hjá mömmu og pabba í fyrradag, en þá mætti vinur foreldra minna til þeirra með tól og tæki til að rífa burt grenitrén agalega stóru og ljótu burt af forbletti lóðarinnar! Vá hvað ég varð glöð þegar ég kom svo labbandi seinna þann daginn að ná í börnin mín til þeirra og sá í húsið. Reyndar kom nú örlítið tár í auga, í svona c.a. 15 sekúndur, bara af því að þessi tré voru búin að vaxa og vaxa með okkur og húsinu síðan það var byggt nánast. Og það er nú enginn smá tími sem hefur liðið síðan það var. En treginn var fljótur að hverfa og varla kom því loksins getur maður séð út um gluggana eitthvað annað en ljót tré. Loksins getur maður labbað að húsinu án þess að vera í myrkri vegna skugga trjánna, loksins er hægt að vera í sólbaði án skuggans, loksins loksins loksins verður hægt að gera þennan hluta garðsins fallegan! Eða það vona ég allavega að hann verði! Bravó mamma og pabbi!

Ég hvet alla þá sem óvart rekast hér inn og lesa þetta að færa smá birtu inn í líf sitt með því að henda burt öllum þeim trjám sem skyggja á húsin og byrgja þeim sýn.
Ekki samt bara henda trjánum, komið þeim þangað sem þau geta fengið annað líf, án þess að eyðileggja fyrir.

Nú annars er fátt í fréttum svo sem, barnaafmæli bara alveg á næstunni og mikil óvissa um hvenær það verði haldið.

Niðurtalning í heimilisflutninga er hafin af alvöru og ég er ekki frá því að spenningurinn sé bara orðinn dálítið mikill.

Ekkert hefur gerst í ritgerðarsmíðum í of langan tíma núna, en það er að sjálfsögðu bara vegna þess að það er of mikið að gera í öðrum málum.

Ég er alveg að farast úr öfund út í hana Ernu vinkonu af því hún er búin að láta verða af því að leggjast undir lazerinn og láta laga í sér augun. Ég bara þori því ekki. Finnst þetta svolítið mikil áhætta, þ.e. að það er smá möguleiki á því að maður verði bara blindur af því að fara í svona aðgerð og þá vil ég nú frekar ganga með þessi ógeðslega ljótandi gleraugu.
En miðað við hvað henni fannst þetta svakalega létt og eiginlega bara skemmtilegt, þá er ég ekki frá því að ég drífi mig bara í þetta um leið og ég sé peninga streyma inn á bankabókina af einhverri óútskýrðri ástæðu.
Það er nú ekki eins og ég hafi ekki farið í augnaðgerð áður þannig að ég ætti nú tæknilega séð að vera bara sjóuð í svoleiðis, en það var bara eitt smá klúður í þeirri aðgerð sem hefur sett sitt mark á augun mín allar götur síðan og það var að saumarnir sem áttu að eyðast á viku eftir aðgerðina, vildu bara ekki eyðast. Tveimur vikum eftir aðgerðina voru þeir ennþá pikkfastir og þurfti augnlæknirinn minn þá að toga þá úr augunum mínum. ÞAÐ VAR EKKI GOTT OG ALLS EKKI ÞÆGILEGT!!! Síðan þá hef ég alltaf verið frekar á varðbergi með hvað kemur nálægt augunum mínum og það tók mig mörg ár að koma linsum í þau, og nota ég slíkt bara í ítrustu neyð.
En einmitt þess vegna væri svo gaman að vera bara laus við gleraugun og að þurfa bara ekkert að troða linsum í augun!!!

Tjah ég læt ykkur vita hvort mér vaxi svo pungur að ég kýli á þettaHlæjandi


Humm jæja ætli þetta verði ekki bara nóg í bili. Ég tjái mig kannski bara meira síðar í dag. Sé til nóg að gera sko!

Kær kveðja,
Signý Björg

Er námið á Íslandi að verða allt of ódýrt? !

07. júní 2007 klukkan 11:37
Ég má bara til með að blogga smá í dag. Í gær heyrði ég (nota bene ekki mikið búin að hafa tíma til að fylgjast með fréttum undanfarið), að skólarnir fengju ekki lengur borgað með nemendum nema þeir útskrifist úr skóla. Nú veit ég ekki nákvæmlega hvernig dæmið lítur út, en mér finnst það nógu slæmt sem ég hef heyrt! Nú hljóta skólarnir að velja nemendur inn eingöngu byggt á einkunnum og því þeim sem þroskast seint ekki gefinn möguleiki á því að bæta sig og sanna. Síðan verður það kappsmál hjá skólunum að útskrifa alla og þá er ekki þar með sagt að kennararnir reyni enn meira á sig til að troða skilningi í hausinn á nemendunum heldur því síður, þeir reyna líklegast frekara að hafa prófin þannig að þau séu sem auðveldust og með sem minnstum líkum á falli og sú ákvörðun mun að sjálfsögðu koma af hærri stöðum en kennarans.
Ég tel það gjörsamlega óhjákvæmilegt að menntunarstigið lækki enn meira með þessu og að námsmenn komist of auðveldlega í gegnum skólana og þá með mun minni þekkingu til að vera hæfir starfsmenn út í atvinnulífið, sem hlýtur bara að fá skaða af!
Mér hefur reyndar fundist þetta eiga nú þegar við um vissan skóla, en vil ekki tjá mig nánar um það, en þar hefur fjöldaframleiðslan verið í aðeins of miklum mæli að mínu mati.
Það er verið að svelta allt í þessu þjóðfélagi sem kemur að menntun og hjúkrun og hvernig er þá hægt að vonast til þess að eftir 20 ár verði ekki allt komið á vonarvöl!

Bara á þeim tíma sem ég hef verið á vinnumarkaði hef ég tekið eftir miklum breytingum á starfsháttum og starfsfólki eftir aldri. Ég byrjaði að vinna 11 ára gömul á prjónastofu og fannst það bara fínt og gaman að geta unnið mér inn smá pening og fá innsýn inn í svoleiðis starf. Núna er það þannig að 14 ára börn mega vinna mest 4 tíma á dag 4 daga vikunnar og það er á sumrin, þau mega eflaust ekki vinna neitt á veturna því þá á skólinn að eiga allan hugann. Og hvað höfum við fengið út úr reglum sem þessum?
Jú börnin okkar eru mun dugminni en þau voru áður, þau eru löt, finnst sjálfsagðara að leika sér bara allan daginn og hvernig er þá hægt þegar þau þekkja ekkert annað til fullorðins aldurs að búast við því að það eigi eitthvað eftir að breytast!
Það má ekki vefja alla of mikið inn í bómull, kynslóðirnar sem foreldrar mínir og annarra eru af, víla ekki fyrir sér að vinna hin ýmsu störf sem þarf að vinna, mín kynslóð er misjöfn eftir uppeldinu, en kynslóðirnar á eftir mér eru ekki í góðum málum að mínu mati og leita alltaf eftir fjarstýringunni þegar þarf að gera eitthvað. Ætli það verði ekki einmitt þannig eftir nokkur ár að við flytjum markvisst inn útlendinga til að skeina okkur og höfum þá senditæki á þeim og erum sjálf með fjarstýringu sem vísar þeim á rétt verk.

Já fuss og svei, ég er ekki ánægð með hvernig þjóðfélaginu hrakar og hrakar og horfi til þess með hryllingi að eftir nokkur ár verði þjóðin jafn fáfróð og Bandaríkjamenn, sem vita ekki einu sinni að það eru til önnur lönd en Bandaríkin og að kjötið sem þeir borða er af dýrum en ekki búið til í verksmiðju frá grunni!

En aftur að menntuninni, það er nú nógu slæmt líka að stúdentsprófið sem einu sinni þótti góð menntun er orðið svo ódýrt að maður fær varla starf við að skúra með slíkt í vasanum. Þar af leiðandi er háskólaprófið orðið eins og stúdentsprófið og eins gott að drífa sig að taka allar M gráður sem mögulegar eru til þess að verða verðmætur starfsmaður, því annað er ekki gáfulegt í dag. En einmitt þetta hvað allir komast í gegnum nám, verður til þess að fleiri þurfa að mennta sig meira og meira og það er dýrt fyrir skólana og  ríkið sem er síðan bara með derring við skólana og neitar að borga með nemendunum sem svo vegna alls þrýstingsins í íslenska neytendaumhverfinu nær ekki að standa í skilum og útskrifast á réttum tíma en eru samt búnir að nýta sér kennslustundirnar og aðstöðuna allan veturinn og lendir það þá á skólanum að borga fyrir það sem mér finnst alls ekki sanngjarnt en ég vil heldur ekki eins og áður hefur komið fram að skólarnir fari í meiri fjöldaframleiðslu út af fjármagni, mér finnst það bara ekki vera rétt og ég vil að ríkið endurskoði alvarlega þessa áætlun sína sem er algjörlega út í hött og koma þá frekar með aðgerðir sem verða til þess að nemendur geti þá frekar hellt sér af fullum krafti í nám í 3 ár t.d. og sé þá með pottþéttar tekjur og húsnæði á meðan sem ekki þarf að kvíða fyrir að borga síðar meir. Aðeins þannig er hægt að sjá til þess að hvatinn verði til að klára námið á einu bretti en ekki að ströggla alls staðar í námi og vinnu og þannig þyrftu skólarnir ekki að lækka kröfurnar.

Þurfti bara aðeins að tjá mig, sorrý ef þetta er ruglingslegt, skrifaði bara út í eitt. Mun hugsanlega tjá mig meira um þetta en þið megið alveg koma með ykkar skoðanir ef einhverjar eru og kannski leiðréttið mig ef ég var að misskilja eitthvað af þessari umræðu, ég heyrði nefnilega bara smá brot:)

Annars er bara nóg að gera og kallinn á leiðinni í enn eitt námið:)

Kær kveðja,
Signý Björg