Aðalvalmynd

Afmæli Salnýjar Kaju

Auglýsing

Afmæli Sólnýjar Ingu

Sigurpáll Valmar fæddur

Klukkan

Afmæli

Atburðarteljari

Leit

Innskráningar kubbur

Fæðingarfréttir!

30. desember 2006 klukkan 06:31
Hæ hó öll þarna úti,

Ég veit að ég skulda ykkur jólablogg og fleira en ég hef ekki tíma í það núna, varð bara að koma því á netið að Erna vinkona mín og Björn unnusti hennar og einnig vinur minn og míns eru frá og með kvöldinu í kvöld, þann 29. desember, er samt komið fram yfir miðnætti núna þannig að færslan hefði þurft að vera komin fyrr en það verður bara að hafa það, það er ennþá kvöldið 29.-30. desember, stoltir foreldrar lítils spræks drengsHlæjandi KossKoss kossar og knús til ykkar allra litla fjölskylda. Ég get alveg ekki beðið eftir að sjá ykkur og litla kríli krúttið!!!

Allavega ýkt skemmtilegar fréttir þetta kvöldið og lengra blogg í vændum að loknum hátíðum.

Ykkar einlæg,
Signý Pigný

Jólin eru að koma svo hratt!!!

22. desember 2006 klukkan 16:57
Það er alltaf jafn merkilegt hvað desembermánuður líður hratt, manni finnst okt og nóv svo skelfilega lengi að líða af því maður er orðinn svo langeygður eftir jólunum en svo um leið og desember byrjar þá getur tíminn ekki liðið nógu hægt til að allt sé nú örugglega klárt á réttum tíma!

Ástæðuna má nú eflaust finna í því að það eiga nánast allir í kringum okkur afmæli í desember og því fer mánuðurinn í endalausa afmælispakkaleiðangra og afmæli í stað jólaleiðangra og tiltektar.

En bara svona að gamni ætla ég að telja hér upp þá sem eiga afmæli í desember fyrir jólin en  ég er ekki með afmælisdagabókina mína þannig að ef ég gleymi einhverjum má benda mér á það og ég set þá með því sama inn:

hmmm desember byrjar reyndar frekar hægt því það er enginn í fyrstu vikunni að minnsta kosti man ég ekki eftir neinum þá:)

En síðan þann 8. desember eiga Kaja frænka og Guðlaugur Þór bróðursonur afmæli.
Þann 11. desember á pabbi minn afmæli eins og áður hefur komið fram auk þess sem Salný Kaja á þá hálfsárs afmæli:)
Þann 12. desember á Bjössi Svili afmæli.
Þann 13. desember síðastliðinn eignaðist frændi minn hana Steinunni Ellu nýjasta stórfjölskyldumeðlim.
Þann 14. desember á Rósa Amma mín afmæli
Þann 16. desember á tengdamamma mín afmæli og Atli mágur maður Söru systur.
Þann 17. desember á Sandra Lilja systurdóttir Sigurgeirs afmæli.
Þann 18. desember á Þórunn Vala frænka afmæli
Þann 19. desember á Torfi frændi Sigurgeirs afmæli
Þann 20. desember á Kolbrún Ýr frænka og dóttir Rósu Bjargar afmæli

Síðan á aðaldeginum þeim 24. desember á ástkær eiginmaður minn afmæli eins og alþjóð mun vita og einnig á Bjössi frændi afmæli þann dag.

Ef ég er að gleyma einhverjum þá endilega commentið þaðUllandi

En síðan átti ég auðvitað eftir að tjá mig meira um sérviskuna mína og þá sérstaklega hvers vegna 16. des er svona sniðugur. Jú eins og þið sjáið þá eiga alveg tvær manneskjur í mínu lífi afmæli þá, en litlan mín á sko líka afmæli þá bara hálfsársafmæli þannig að þetta er allt mjög vel skipulagt hjá okkur. Salný Kaja á hálfsársafmæli á pabbaafmælisdegi og Sólnýjar Ingu fæðingardagur var skipulagður með þennan sama díl í huga þann 16. júní og auðvitað heitir hún líka Inga eins og tengdamamma sem heitir Ingibjörg en er alltaf kölluð Inga, en nafnið er reyndar samt í höfuðið á þremur konum úr lífi okkar. 
Síðan segi ég að dagurinn hafi verið skipulagður en það er bara rétt að hluta því jú við vorum búin að panta þann 16. júní fyrir skipulagðan keisara en hún átti samt ekki að fæðast fyrr en 24 eða 25. júní, en þar sem ég fór fyrr af stað með Salnýju Kaju og það er víst alltaf brjálað að gera á fæðingardeildinni eftir 17. júní og að auki helgi og svoleiðis, þá var þetta í alla staði besti dagurinn fyrir skipulagðan keisara, en þar sem ég átti að fá þessa fæðingu svo létta eftir ósköpin með Salnýju Kaju þá varð ég nú ansi hissa þegar ég fór bara af stað klukkan 0200 um nóttina, en nota bene Sigurgeir átti að mæta upp á spítala þar sem ég var komin inn kl. 0730 en þurfti að vakna upp af værum svefni við það að ég hringdi og sagði honum að drattast upp á spítala ef hann vildi ekki missa af þessu. Það var kallað á skurðlið fyrir mig og síðan var snúllan mín tekin með keisara kl.06:33 sem var akkúrat 2 árum 4 dögum og 12 klst upp á mínútu á eftir Salnýju Kaju. Síðan mætti læknirinn sem átti að skera mig um tíu leytið bara í heimsókn að kíkja á mig og litluna í stað þess að sjá um pakkann:) 

En jeminn ég ætlaði nú svo sem ekkert að fara í einhverjar endurminningar hérna, en það er víst búið og gert og þið ráðið bara hvort þið nennið að lesa þetta eða ekki:)

Annars er jólaundirbúningurinn allur í gangi en ég er alveg með grænar bólur vegna tilhugsunarinnar um að fara í bæinn og versla restina af jólagjöfunum!! 

Blogga kannski um það á morgun hvernig öllu miðar.

Farið varlega í jólastressið og hafið það gott,

Ykkar,
Signý PignýKoss

 

Ég er jólaskreytingarmeistarinn í Trackwell árið 2006!!!

14. desember 2006 klukkan 21:22
Þá er það orðið opinbert, ég sigraði jólaskreytingarkeppnina í Trackwell með yfirburðum að mínu mati!!! Eina sem skyggir á gleðina er að þetta er aðallega karlafyrirtæki og því fannst þeim ekki hægt að hafa sigurvegarann stelpu og voru því með einhver glötuð leiðindi eins og að skipta sigrinum í tvennt!!! Þannig að Svenni Penni fékk heiðurinn á að deila fyrsta sætinu með mér þrátt fyrir miklar mótbárur frá mér!! Reyndar fékkst hann nú rétt í þessu til að viðurkenna að ég sé raunverulegi sigurvegarinn enda voru verðlaunin mín sérstaklega keypt handa mér en hann fékk einhvern afgang sem var til hérna. Niðurstaðan er því sú að ÉG VANN, húrra húrra húrra Hlæjandi

Básinn minn hefur tekið miklum breytingum að undanförnu en ég hef verið mjög kappsöm og ákveðin í að vinna og það hefur eins og áður kom fram skilað sér í formi verðlauna. Básinn er kallaður bleiki básinn, enda er ég ekki þekkt fyrir neitt annað en að elska bleika liti!!! Má ég til með að nefna að bleikt mogm var til að mynda hluti af skreytingunni minni og þemað var að sjálfsögðu BLEIK JÓL!!!  En ég nenni ekki að þylja allar skreytingarnar upp því það mun taka of langan tíma en sjón er að minnsta kosti sögu ríkari.

Ég var með geysilega mikinn jólaanda hérna og bakaði meira að segja smákökur (til að fá lyktina í húsið) fyrir samstarfsmenn og bræddi súkkulaði í potti til að dýfa smákökunum ofan í . Ég sá ekki betur en að mikil ánægja hafi verið með það.

Nú síðan var í hádeginu haldið á hlaðborð á veitingastaðnum Vox á Nordica og allt of mikið borðað á kostnað fyrirtækisins.

Síðan fengum við jólagjafirnar frá fyrirtækinu í formi pakka sem lítur út fyrir að innihalda einhvers konar gjafabréf og er þeim sem eru jafn forvitnir og ég velkomið að giska á hvað gjafabréfið inniheldur með því að kommenta það hér að neðanHlæjandi

Síðan eru það verkefnin sem eru framundan en þau eru ótalmörg t.d. á ég eftir að laga helling til eftir framkvæmdir síðustu vikna, kaupa nokkrar jólagjafir, pakka inn hellingi af jólagjöfum, taka gullfallegar myndir af prinsessunum mínum og setja í óskrifuð jólakort, langar að mála eldhúsinnréttinguna, er búin að skipta um höldur á henni en finnst það bara ekki nóg, síðan á ég eftir að klára fjölmörg verkefni í vinnunni sem hlaðast hraðar og hraðar inn, á eftir að fá mígreniskast, á eftir að átta mig á því hvað mér þætti vænst um að fá í jólagjöf fyrir utan ánægjuleg jól með fjölskyldunni minni, og lengi mætti telja, ætli ég haldi ekki bara áfram með þessa upptalningu síðar og láti þetta duga í bili.

Bless í bili,

Ykkar
Signý Pigný
Sigurvegari

Pabbi minn á afmæli í dag!

11. desember 2006 klukkan 16:47
Hjartanlega til hamingju með afmælið elsku besti pabbi minn Hlæjandi

Pabbi minn er besti pabbi í heimi! Alltaf tilbúinn til að hjálpa manni með allt og bara svo skemmtilegur og gáfaður maður að það eru forréttindi að fá að vera dóttir hans. Allt þetta á að sjálfsögðu líka við um mömmu sem fékk enga svona færslu þegar hún átti afmæli því enduropnun bloggsins hafði ekki átt sér stað þá.

Síðan langaði mig líka að tjá mig um það að þegar ég átti eldri dóttur mína þá, fyrir utan öll ósköpin sem gengu á við að koma henni út, var ég alveg miður mín yfir afmælisdeginum hennar af því mér fannst hann alls ekki nógu töff svona tölulega séð. 110602, alls ekki nógu flott eins og þið sjáið!!!. En batnaði heil ósköp þegar pabbi minn benti réttilega á að þegar hún ætti afmæli væri hálft ár nákvæmlega þangað til hann ætti afmæli og jeminn þvílíkur fögnuður, dagsetningin var orðin töff. Hjúkket.

Og ætli ég sé ekki bara ánægð með þessa dagsetningu í dag, síðan kemur meiri svona fróðleikur um sérvisku mína þann 16. desHlæjandi

En jæja nóg í bili, þarf að sinna stóru veiku stelpunni og vinna svoldið.

Ykkar,
Signý Pigný Koss

Dagur 2 eftir enduropnun bloggsins.

07. desember 2006 klukkan 16:50

Það styttist óðfluga í jólin og ég er aldrei þessu vant búin að vera ótrúlega dugleg að skreyta. Ekki nóg með að ég sé með langflottasta básinn í vinnunni, heldur er heimilið orðið óvenju jólalegt.
Þetta er auðvitað í ,að mig minnir, fyrsta skipti sem ég er ekki í prófum fyrir jólin og því finnst mér eins og ég eigi allan tímann í heiminum til að gera fíntUllandi
Hóst hóst það er reyndar alls ekki orðið fínt heima, meira eins og allt í drasli en samt komið jóladót og kassar og drasl með því.
En allavega þá er það checklistinn:

1. Jólaseríur komnar út í garð.
2. Aðventuljós komin í glugga.
3. Jólagardínur komnar í eldhúsgluggana.
4. Burstabærinn frá Afa Valda kominn í snjóbúning.
5. Við stelpurnar búnar að baka piparkökur.
6. Hellingur af jólagjöfum komnar í kassa en ekki í pappír.
7. Hellingur af jólagjafahugmyndum komnar í heila en ekki á blað.

Hmm það er nú bara allt og sumt og víst nóg eftir að gera en það er líka í lagi því það eru margir dagar en til stefnu.

Salný Kaja syngur jólalög á fullu heima og Sólný Inga hermir eftir og þær eru farnar að hlakka mikið til jólanna og það er ekki laust við að ég hlakki bara sjálf heilmikið til jólanna þessi jólinHlæjandi

En jæja nóg komið í bili af blaðri.

Kær kveðja,
Signý Pigný

Jei ég komst loksins aftur inn!!

06. desember 2006 klukkan 17:03
Þvílík sæla og gleði!

Ég er drottning bloggstofnenda að margra mati, þar sem ég er alltaf að opna nýjar og nýjar bloggsíður, en gengur illa að halda þeim við. Það má sérstaklega rekja til þess hversu dugleg ég er að skipta um lykilorð og þá meina ég semja ný lykilorð á staðnum og skrifa þau hvergi niður!!! En no more, ég nenni því ekki lengur! Hér eftir verða lykilorðin öll þau sömu og eins einföld og hægt er. En allavega málið með þessa síðu var að ég stofnaði hana fyrir löngu síðan og þá var eitthvað ekki í lagi með gleymt lykilorð þjónustuna og því leit bara út fyrir að ég myndi aldrei komast aftur inn í þetta, verandi svona dugleg að gleyma lykilorðum!, en síðan bara svona fyrir slysni ákvað ég að kíkja á síðuna mína í dag, og prófa að logga mig inn svona einu sinni enn og viti menn loksins virkaði gleymt lykilorð dæmið svona líka skínandi vel og ég er bara hér að blogga! Já undrin gerast ennHlæjandi

Endilega kommentið ef þið viljið að ég haldi áfram með þessa bloggsíðuUllandi

Ykkar,
Signý Pigný Koss