Aðalvalmynd

Afmæli Salnýjar Kaju

Auglýsing

Afmæli Sólnýjar Ingu

Sigurpáll Valmar fæddur

Klukkan

Afmæli

Atburðarteljari

Leit

Innskráningar kubbur

Hverjir eru að njósna????

05. febrúar 2007 klukkan 17:26
Ég er svo forvitin að það er engu lagi líkt, jú reyndar hljómar lagið svoldið eins og what´s new pussycat wó wó wó wó wó, þannig að mér þætti svakalega vænt um að þeir sem kíkja hérna á þessa ómerkilegu bloggsíðu kvitti fyrir komu sína í athugasemdarkerfið bara með því að segja kvitt og nafnið eða upphafsstafina eða eitthvað. Þurfið alls ekki að tjá ykkur nein ósköp ég sé um það, en ef þið viljið kommenta á það sem ég segi og búa þar með til málefnalegar samræður þá er það alveg í keyi. En munið bara að ég get verið hörundsár og farið í langa fýlu þannig að vandið orðavaliðTala af sér

Kær kveðja,
Signý Pigný

Nú brenna mér orð á vörum eftir langan þurrk!

04. febrúar 2007 klukkan 01:06
Þögnin friðsæla hefur verið rofin með yfirlýsingu frá Erlu minni fyrrverandi samstarfskonu í Trackwell, þið spyrjið kannski hví ég kenni henni um þagnarrofin, en það var jú henni að kenna að neðangreind fór í felur með hugrenningar sínar. Ástæðan: Erla lét alla í Trackwell vita af blogginu og þá var nú allur friður úti fyrir áhugaverð blogg því ekki gat ég farið að leggja mig viljandi undir ritskoðun snillinganna þar!!! En nú er smá tími liðinn frá því ég kvaddi það samstarfsfólk og hélt á ný mið og er með fullvissu Erlu sannfærð um að enginn í Trackwell lesi bloggið mitt lengur, allir búnir að gleyma mér og farnir að horfa fram á veginn svartan en ekki bleikan sem hann hefði verið með mérUllandi

Ég hef svo sem ekki mikið að segja, er bara búin að vera að koma mér fyrir í nýju vinnunni sem er fyrir forvitna á tekjusviðinu hjá Fjársýslu ríkisins og er ég staðsett niðri í bæ, sem er mjög skemmtilegt í hádeginu og verður eflaust alveg æðislegt í sumar að geta spókað sig á laugarveginum í góðu veðri. Ég er loksins í "alvöru" viðskiptafræðingsstarfi sem er ágættGlottandi 

Ég er endalaust að skoða hús en finn ekkert sem mig langar alveg svakalega mikið í og spyr því Rax, ætla mamma þín og Einar ekkert að fara að leyfa mér bara að kaupa húsið þitt??? Það stranda allar húsapælingar á því að ég vil ekki fara of langt frá mömmu minni og pabba, ég er nú einu sinni ennþá bara barn og þarf að geta hlaupið yfir þegar svo bjátar á!!!!
Sigurgeir er reyndar ekki eins spenntur fyrir því að vera í svona mikilli nálægð við mömmu og pabba bara svona upp á allt stripplið á honum, en ég meina kommon það er ég sem ræð!!!

Síðan er ég með smá flensupensu núna og er ekki alveg að digga það, en finnst mjög gaman að vera með kvefaða rödd, hefði helst viljað taka upp plötu núna bara af því mér finnst kvefrödd svo kúl og fæ hana svo sjaldanHlæjandi

Ég hlakka til þegar Arna og Sibbi og snúllurnar þeirra tvær flytja heim, matarklúbburinn er alveg búinn að dala síðan þau fluttu út og á því skal nú verða breytingBrosandi

Humm hvað er fleira að frétta??? Ég er ekki ennþá byrjuð á ritgerðinni minni til MA gráðunnar minnar í Mannauðsstjórnun og er það sökum einstaklega mikils hugmyndaleysis um efni ritgerðarinnar, ef einhver er með brilliant hugmynd að efni til að rannsaka með tilliti til Mannauðsstjórnunarmála þá væri afar vel þegið að sá hinn sami skellti henni hér í athugasemdirnarHlæjandi

Æ ætli ég láti þetta ekki duga í bili, verð að eiga eitthvað í kollinum til að blogga um á morgun eða hinn og verð að fara að elda kvöldmat, kallinn er kominn heim og er svangur.

Þangað til næst,
Kær kveðja,
Signý PignýKoss